Til baka

Skilmálar

Síðast uppfært: 02.04.2026

1. Almenn ákvæði

Með því að nýta þjónustu sundlaugarinnar að hlöðum (1214gv ehf) samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

2. Greiðslur og bókanir

  • Bókanir í opna tíma fara fram í gegnum bókunarsíðu okkar, en hópatímar eru bókaðir með tölvupósti.
  • Öllum staðfestum bókunum fylgir staðfestingarpóstur.
  • Öll viðskipti eru greidd fyrirfram með greiðslukorti í gegnum greiðslugátt TEYA eða með millifærslu.
  • Afsláttarmiðar sem keyptir eru hjá KotiD Sauna fyrnast tveimur árum frá kaupdegi.
  • Öll gjöld eru í íslenskum krónum (ISK).

2.1 Greiðslur fara fram í afgreiðslu sundlaugarinnar að hlöðum með greiðslukorti eða reiðufé. Fyrirfram bókanir á hópum greiðist með millifærslu.

2.2 Allar greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum greiðsluhriðingu hjá TEYA.

2.3 Sundkort sem seld eru sumarið 2025 og 2026 gilda til og með 31. ágúst 2026. Sundkort frá Hlöðum gilda almennt í tvö sumur.

3. Endurgreiðslur

  • Ef greitt hefur verið fyrir sundferð og þjónustan eða hluti af henni verið nýtt á einstaklingur ekki rétt á endurgreiðslu.
  • Vörusala fer fram á staðnum, ef vörur eru ekki fullnægjandi í lagi fæst endurgreiðsla á þeim, metið af söluaðila.

4. Ábyrgð og öryggi

  • Sundlaugin að hlöðum (1214gv ehf) ber ekki ábyrgð á slysum eða meiðslum sem kunna að verða á einstaklingum á meðan sundferð stendur.
  • Viðskiptavinir bera sjálfir ábyrgð á að fylgja öryggisleiðbeiningum og reglum sem sundlaugin setur á sundlaugar- og búningssvæði. Eigin hegðun, líðan og heilsa eru á ábyrgð hvers og eins.
  • Sundlaugin að Hlöðum ber ekki ábyrgð á persónulegum munum sem kunna að týnast eða gleymast í Sundlauginni, búnings- og salernisaðstöðu. Viðskiptavinir bera sjálfir ábyrgð á eigum sínum.

5. Breytingar á skilmálum

Sundlaugin áskilur sér rétt til að breyta skilmálum sínum hvenær sem er. Uppfærðir skilmálar verða birtir á heimasíðu okkar: www.hladirsund.is

6. Lagaákvæði

Komist ekki að samkomulagi um ágreining sem kann að rísa vegna þessara skilmála skal leita til dómstóla á Íslandi, og skulu íslensk lög gilda.