Sundlaugin að Hlöðum - falleg sundlaug í Hvalfirði

Eigum saman svamlandi stundir!

Sjáumst í sundi!

Opnunartímar

Sundlaugin & aðstaðan

Sundlaugin að Hlöðum er hugguleg og aðlaðandi sundlaug sem hentar flestum. Njótið afslöppunar í ljúfu umhverfi — hlýrri sundlaug, heitum pottum, saunu og köldum potti.

Eigum saman svamlandi stundir! Sjáumst í sundi!

Sundlaugin að Hlöðum á sólríkum degi
Vaðlaugin og pottar

Sundlaugin

Skiptist í laug og vaðlaug. Laugin er 16,67m löng og er hitastig hennar um 31–32 gráður. Hitastig vaðlaugarinnar er um 30–31 gráður. Við erum með gott úrval af sunddóti sem hvetur til leiks og skemmtunar.

Heitir pottar

Þrír heitir pottar. Tveir hitaveitupottar, hitastig 38–39 gráður og 39–40 gráður. Hver pottur rúmar max 6 manns. 9 manna hitaveitupottur sem er opnaður sérstaklega þegar mikil aðsókn er í laugina. Hitastig hans er um 38–40 gráður. Rúmar 8–9 manns.

Sauna

Hefðbundin sauna með rafmagnsofni, 75–90 gráður. Rúmar 8 manns þægilega. Sitja skal á handklæði – hægt að leigja. Ilmolíur eru ekki leyfilegar.

Kaldur pottur

Kaldur pottur með hitastigi 6–9 gráður – fullkomin leið til að kæla sig á milli heitrar laugar og saunar. Rúmar 4–5 manns.

Klefar

Kynjaskiptir klefar, inni og úti. Inniklefar eru á neðri hæð, ekki er lyfta á staðnum. Aðgengi fyrir hjólastóla er í útiklefa. Ekki eru læstir skápar í klefunum, boðið er upp á læst verðmæta box í afgreiðslu.

Á bakkanum

Við leyfum ís og drykki í pottana & vaðlaug. Eftir smá buslugang er næs að setjast í pottinn eða vaðlaugina og njóta þess að fá sér ís eða kaldan drykk. Hægt er að gera upp reikning þegar komið er upp úr lauginni.

Opnunartímar

Sundlaugin að Hlöðum er sumarsundlaug og er aðeins opin yfir sumarið.

Sumarið 2026

23. maí – 15. ágúst

Opin alla daga yfir sumarið

Einnig opið helgarnar:

22.–23. ágúst & 29.–30. ágúst

Mánudaga – föstudaga

12–20

Laugardaga – sunnudaga

10–20

Klippikort frá 2025 og sem seld eru sumarið 2026 gilda til 30. ágúst 2026.

Verðskrá samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

Verðskrá

Verðskrá samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Gildir út 2026.

Aðgangur

Börn 0–5 áraFrítt
Börn 6–16 ára500 kr.
Fullorðnir1.200 kr.
Ellilífeyrisþegar / öryrkjar1.020 kr.
Sturta (án sundlaugar)400 kr.

Sundkort – 10 skipti

Börn – 10 skipti3.350 kr.
Fullorðnir – 10 skipti9.000 kr.
Ellilífeyrisþegar / öryrkjar – 10 skipti7.650 kr.

Leiga á búnaði

Sundföt900 kr.
Handklæði900 kr.
Saunastykki300 kr.

Núverandi rekstraraðili tók við 2025. Klippikort frá 2025 og sem seld eru sumarið 2026 gilda til 30. ágúst 2026.

Viðburðadagatal

Þegar það er gaman, þá er gaman!

Við leggjum mikið upp úr því að hafa líf í kringum sundlaugina okkar og setjum upp viðburðaröð yfir sumarið. Margir viðburðanna eru gestum okkar að kostnaðarlausu, sumir gegn sanngjörnu gjaldi.

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

Við auglýsum viðburði og dagskrá á Facebook og Instagram — vertu á verðgæslu!

Viðburðaröðin er styrkt af

Samtök sveitarfélaga á VesturlandiÍþrótta- og æskulýðssjóður Hvalfjarðarsveitar
Þrautabrautin í sundlauginni að Hlöðum
Nýjung í sundlauginni!

Þrautabrautin

Þrautabrautin okkar kom til leiks í ágúst 2025, mörgum til mikillar ánægju! Hún er á dagskrá nokkur skipti yfir sumarið þegar veður leyfir.

Við munum auglýsa þrautabrautardaga á samfélagsmiðlum okkar — fylgstu með á Facebook og Instagram til að missa ekki af!

Viltu leigja eða kaupa þrautabraut?

Sendu okkur línu og við gefum þér frekari upplýsingar.

Hafa samband

Staðsetning & upplýsingar

Við erum staðsett í norðanverðum Hvalfirði, um 10 mínútna akstur frá þjóðvegi 1, þegar beygt er inn í Hvalfjörðinn við Laxárbakka.

Opnunartímar

Mán–fös: 12–20

Lau–sun: 10–20

23. maí – 15. ágúst 2026

Opna í Google Maps

Sundlaugin að Hlöðum er í eigu Hvalfjarðarsveitar.
Rekstraraðilar: Guðmundur Júlíusson & Valdimar Brynjarsson
1214gv ehf — kt. 4603261250

Hafa samband

Sendu okkur línu